Fíasól gefst aldrei upp
- Stóra sviðið
- 2:20 með hléi
- Verð: 6500
- Frumsýning 2. desember
Fíasól gefst aldrei upp
Hún er óstöðvandi gleðisprengja, full af orku en stundum löt, skarpgreind en fljótfær og svo hugmyndarík að foreldrum hennar stendur hreinlega ekki alltaf á sama. Stelpuskottið Fíasól er fyrir löngu orðin sígild í íslenskri bókmenntasögu og á sér aðdáendur á öllum aldri.
Í vetur stígur hún loks á Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu í nýrri leikgerð sem byggir á rómuðum skáldverkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Hér fá áhorfendur að hitta systur Fíusólar og foreldra, ömmu og afa, besta vininn Ingólf Gauk, kennarann, alla krakkana í bekknum og síðast en ekki síst lata kjölturakkann Jensínu. Það gengur á ýmsu bæði í skólanum og á heimilinu þegar Fíasól ákveður að hafa tækjalausan dag og ekki síður þegar hrekkjavakan nálgast en þegar mamma heldur að þau pabbi geti bara lagt sumarhýru Fíasólar inn á bankabók verður nú fyrst allt vitlaust og Fíasól stofnar hjálparsveit barna. Eins og Fíasól segir sjálf þá er ekki alltaf gott að vita hvort hugmyndir séu góðar eða slæmar þegar þær koma upp í kollinn!
Leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiðir hér úrvals lið leikara og stóran og kraftmikinn barnahóp í nýjum fjölskyldusöngleik með frumsaminni tónlist hins góðkunna Braga Valdimars Skúlasonar.
Fíasól gefst aldrei upp er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Baráttusöngurinn - horfaLeikmyndinBúningarnir
Bakvið tjöldin með leikhópnumLeikarar
- Bergur Þór Ingólfsson
- Birna Pétursdóttir
- Jörundur Ragnarsson
- Rakel Ýr Stefánsdóttir
- Sigrún Edda Björnsdóttir
- Sveinn Ólafur Gunnarsson
- Sölvi Dýrfjörð
- Vilhelm Neto
- Auðunn Sölvi Hugason
- Auður Óttarsdóttir
- Bríet Sóley Valgeirsdóttir
- Garðar Eyberg Arason
- Guðmundur Brynjar Bergsson
- Guðný Þórarinsdóttir
- Gunnar Erik Snorrason
- Heiðrún Han Duong
- Hildur Kristín Kristjánsdóttir
- Hlynur Atli Harðarson
- Jakob Steinsen
- Kolbrún Helga Friðriksdóttir
- Kristín Þórdís Guðjónsdóttir
- Oktavía Gunnarsdóttir
- Óttar Kjerulf Þorvarðarson
- Rafney Birna Guðmundsdóttir
- Rebecca Lív Biraghi
- Sigurður Hilmar Brynjólfsson
- Stormur Björnsson
- Viktoría Dalitso Þráinsdóttir
- Þyrí Úlfsdóttir
Listrænir stjórnendur
Höfundur
Kristín Helga GunnarsdóttirLeikgerð
Maríanna Clara Lúthersdóttir og Þórunn Arna KristjánsdóttirLeikstjórn
Þórunn Arna KristjánsdóttirTónlist og söngtextar
Bragi Valdimar SkúlasonDanshöfundur
Valgerður RúnarsdóttirTónlistarstjórn
Karl OlgeirssonLeikmynd
Búningar
Lýsing
Hljóðmynd
Þorbjörn SteingrímssonLeikgervi
Elín S. Gísladóttir